Þegar ég nenni
Klukkan
Tenglar
28.08.2008 09:30:51 / Helga

hnuss

ég veit ekki hvað skal segja um hátíðarhöldin í gær útaf komu landliðsins. Þeir stóðu sig jú vel ekki spurning með það, en mér finnst þetta eiginlega vera farið að ganga út í öfgar.
Það var gerð söfnun þar sem unnust 10 millur, síðan fékk hsí 50 millur og síðan er silfursjóður uppá 20 millur þannig að nóg virðist vera til af peningum í þetta en ekki í að manna dagvistun í skóla. Síðan finnst mér að það vanti samræmi í þessar orðuveitingar. Það er verið að segja að það sé svo ótrúlegt að frá þessu litla landi komi svona sterkt lið sem komist á verðlaunapall. Hvað þá með að fatlaður einstaklingur sem er í minnihlutahópi sem kemur frá smáþjóðinni Íslandi fái gullið, mér finnst það ekkert minna merkilegt þannig að fyrst að handboltaliðið fékk riddarakrossinn (sem ég er í sjálfu sér ekkert á móti) afhverju ekki þá allir hinir sem hafa komist á verðlaunapall líka. Samkvæmt einu bloggi þá fékk Vala Flosa víst riddarakrossinn en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur.
Svo síðasta athugasemd mín við þessi herleg heit er afhverju var verið að senda þristinn í fylgdarflug með silfurvélinni??
þetta var mjög pínlegt að horfa á. Ég sá þristinn og þyrlurnar fljúga saman í flottu flugi, ekkert mál með það. Síðan kom Boeing vélin langt á eftir og tók síðan frammúr. Síðan voru farnir tveir hringir, eða afsakið þrír hringir yfir höfuðborgarsvæðið, þyrlurnar voru á fullu til að hafa eitthvað í bið boeing vélina og síðan var þristurinn langt á eftir og átti ekki séns á að vera í samfloti með hinum. Eins og ég sagði áðan að þá var þetta hálf pínlegt þristarins vegna. þetta er eins og að setja trabant í keppni við porce.
Jæja þá er ég hætt að tuða
bæó

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 12:32:55 / Helga

afmæli

Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann pabbi
hann á afmæli í dag

hipp hipp húrra

heil 60 ár liðin frá því að hann fæddist:d

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 08:51:25 / Helga

takk fyrir kveðjurnar

hæ hæ
það eru að verða 2 vikur síðan ég byrjaði í vinnunni
þetta gengur allt vel en hægt þyrfti helst að vera meira af fólki en það er vona á fleirum með haustinu

íbúðarmálin standa þannig að mágur Kittýar kom og skoðaði fyrir páska og síðan er einn að koma og skoða á morgun þannig að ekki höfum við selt og þar af leiðandi ekki getað keypt okkur íbúð hér fyrir sunnan svo að það er hótel mamma en um sinn.
mamma er að vísu voðalega ánægð að hafa okkur þar sem hún þarf ekki að elda jafn oft. á meðan er það bara að borga niður skuldir og svoleiðis.

Síðan er það helgarferð til Amsterdamm á döfinni um þarnæstu helgi, það verður gaman, hitta mág minn og svila (held það sé skrifað svona).

jæja nenni ekki að skrifa meir
bæó

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 19:52:38 / Helga

jæja jæja

hehe held það sé komin tími á smá færslu :lol:
smá yfirlit frá síðustu færslu:
verkefni búið (jibbý)
kynning búin (gekk vel)
útskriftarferð til Krítar lokið (mjög gaman)
Útskrift lokið (var voðalega fín og gaman að fá plagg yfir að þessu sé lokið)
komin með vinnu í Hlutverkasetrinu (ekki sú sem ég vonaðist eftir en lofar samt góðu)
hlutverkasetur.is
slappað mikið af
get frá og með deginum í dag löglega kallað mig iðjuþjálfa
verið dugleg að mæta í ræktina :)
búin að sóla mig helling8)

þannig að þar hafiði það
svo má alveg skrifa í gestabókina eða athugasemdir

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 11:31:58 / Helga

jibbý

þá er þetta næstum því búið
ég er búin með verkefnið, búin að skila því inn og þá er ein lítil kynning eftir
ég þarf að pakka niður og taka til afþví ég er að fara suður á eftir en ég er í hálfgerðu spennufalli þannig að ég get ekki klárað neitt sem ég er að gera
byrjuð að ryksuga, byrjuð að finna hvað ég þarf með suður en get ekki haldið áfram
bra
þetta er svo mikið æði

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 11:02:32 / Helga

jæja jæja

bara aðeins að láta heyra frá mér
það er allt ágætt að frétta af mér.
verkefnavinnan heldur áfram og er farin að ganga eitthvað
það styttist samt óðfluga í að ég þurfi að skila og þetta verði bara búið
þið munið ekki heyra mig kvarta yfir því að þetta verkefni klárist
þetta hefur verið erfið og löng fæðing sem fer að klárast
ég lagðist í flensu í síðustu viku þegar ég kom norðu, ekki gaman
svo ætlaði Bjarki að vera svo sætur og koma norður og hugsa um mig sem hann og gerði
nema að hann lagðist líka í flensu þannig að ég var farin að hugsa um hann :d ég er samt alveg að verða laus við flensuna, smá eftir í nefinu en annars góð
Mamma og amma eru út á Costa del sol að slappa af í sólinni, verða í 3 vikur í heildina minnir mig, ekki slæmt það, væri alveg til í að vera með þeim að slappa af í sólbaði og vera í hitanum. Þær koma til baka daginn sem ég skila verkefninu.
Það er ótrúlegt að hugsa um hvað það er lítið eftir af skólanum, það er að skila verkefninu sem er á ágætis leið og svo að kynna það og þá er þetta búið. 4 ára streði lokið. þetta er búið að vera ótrúlega fljótt að líða

en er annars ekkert að frétta af öllum þessum einstaklingum sem eru reglulega að skoða síðuna mína???? ég er pínu forvitin að vita hverjir þetta eru!?!?!? síðast þegar ég spurði og bað fólk að kvitta fyrir sig þá voru 2 sem kvittuðu fyrir sig... það eru varla þessar 2 sem koma oft á dag og skoða hjá mér....

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 19:14:40 / Helga

sumar

gleðilegt sumar allir saman vonandi hefur dagurinn hjá ykkur verið betri en minn
ég er því miður komin með hita og kvef og eins og ég segi það þá er nefið og ennis og kinnholurnar fullar af einhverju ógeði, ekki gaman
heldur ekki gaman að vera ein heima þegar maður er með kvef

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 16:38:51 / Helga

hávaði

mér grunar að hávaðinn sem ég heyri núna sé Akureyringar að taka þátt í mótmælum um hátt verð á bensíni. allavegana er búið að vera annsi leiðinlegt flautulíkt hljóð núna í einhvern tíma

ég er svo sem alveg sammála því að verðið sé mjög hátt á bensíni og vildi alveg hafa það lægra en hvað með að hugsa aðeins til framtíðar. Það eru takmörk á því hvað hægt er að dæla upp miklu af olíu. Það virðist sem að heimurinn sé annsi duglegur við að ganga á þessar byrgðir og því má leiða hugann að því hvernig þetta verður eftir 10 15 eða 20 ár?? verður til næg olía til þess að knýja öll þessi farartæki?? nei ég bara spyr okkur virðist ekkert vera að fækka heldur fjölga ef eitthvað er

Ég yrði mjög sátt við að borga þetta verð ef ég vissi að ég væri t.d. að

styrkja rannsóknir á svona "alternative" möguleikum, það hlýtur að vera hægt að knýja bílana með einhverju öðru

  • eða auka uppbyggingu á vetnisstöðvum um landið þannig að hægt sé að fara á vetnisbílum á milli landshluta þannig að þegar ég þarf næst að skipta um bíl að vetnisknúinn bíll væri inn í dæminu...

styrkja almenningssamgöngur þannig að þær virki betur heldur en að fara á bíl. þið sjáið bara eins og london, parís og new york þar er þétt net af underground kerfi, það er lítið mál ef þú missir af lestinni, sú næsta kemur bara eftir 5-7 mínútur, þú verður ekki fastur í umferðar hnút og þetta er út um allt. þegar ég hef farið til Parísar og London þá dettur mér ekki í hug annað en að nota þetta. Getiði ímyndað ykkur að vera keyra um í París í kringum Sigurbogan og svona þá vil ég heldur geta sest niður og komist á leiðarenda með heilsuna í lagi. ég er ekki að grínast ég verið í leigubíl sem keyrði í kringum Sigurbogann og ég var farin að svitna og fá aukinn hjartslátt mér leyst ekki mikið á þetta.
Fyrir utan tímasparnaðinn, þú þarft ekki að skafa af bílnum, þú ert ekki fastur í umferð og þú þarft ekki að finna bílastæði heldur sestu bara inn í lestinu og getur þess vegna lesið blað eða bók á meðan. Væri ég til


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 21:46:12 / Helga

hnuss meiri snjór



náði að taka þessu mynd hún er kannski ekki sú augljósasta í heimi en þetta er snjórinn sem er ofan á grillinu okkar. af þessu sjónarhorni myndi vanalega sjást rétt ofan á grillið
þannig að það hefur snjóað núna

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 12:39:25 / Helga

minni snjó takk fyrir

það er búið að snjóa ágætis lag af snjó í nótt og í morgun
væri alveg til í að vera laus við hann.
ég ætlaði að reyna að taka mynd af snjónum með vefmyndavélinni en það var ekki alveg að takast þar sem það sást bara hvítt, það er frekar bjart úti.
ég vaknaði upp við vondan draum í morgun, mig dreymdi að tölvunni hefði verið stolið og ég hefði ekki tekið neitt backup af lokaverkefninu mínu :( ekki gott þannig að ég dreif mig frammúr og tók afrit til öryggis. það myndi alveg fara með mig ef að það glataðist, þetta er alveg nógu erfitt fyrir. þetta verkefni mjakast áfram, veit hinsvegar ekki hvort það mjakist nógu hratt
það er ekkert að gerast í íbúðarmálum, enda var í fréttunum að það hefðu aldrei selst jafn fáar íbúðir og núna frá held ég 2004, semsagt markaðurinn er hálf dauður, það lýtur allt út fyrir að við þurfum að leigja íbúðina út, ekki beint spennó, hefði alveg verið til í að vera laus við þetta.
en jæja nú eru það verkefni sem bíða mín
bæó

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 10:48:45 / Helga

tapað /fundið

ég hér með auglýsi eftir einhverjum sem hefur tapað tomma og jenna disk en situr upp með eitt eintak af pretty women án hulsturs.
Ég ætlaði að horfa á pretty woman um helgina, það varð ekki mikið úr því þar sem það er tomma og jenna diskur í því hulstri (ég á ekki tomma og jenna sjálf þannig að diskurinn er ekki þar). þar sem ég hef afburða lélegt minni gagnvart svona hlutum þá er ég að vona að sú/sá sem fékk myndina lánaða muni eftir því og geti athugað hvort diskurinn liggji hjá þeim, ég man ekkert hverjum ég lánaði myndina :(

Líka hver er með 8. seríuna mína af Friends?? Sú má endilega gefa sig fram :s

Held að það væri sniðugt fyrir mig að skrifa þetta niður svo ég fari ekki að tapa diskunum mínum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 12:17:47 / Helga

hjálp

mér finnst gestabókin orðin aðeins of mikið sorgleg síðasta færslan er frá 2006 :(
þannig að ég myndi alveg þiggja hjálp ykkar til þess að gera gestabókina mína aðeins minna sorglega please;)

annars þá er allt ágætt af mér að frétta
ég er ein í kotinu hérna fyrir norðan sem er að vísu pínu erfitt, það er alltaf betra að hafa einhvern hjá sér.
ég er byrjuð á lokaverkefninu, það gengur en hægt sem er þó betra en ef það gengi ekki

ég bauð stelpunum í bekknum í heimsókn í gær það var mjög fínt sátum heillengi og vorum að kjafta og borða og pæla í útskriftarferð og slíku.
Ég er að hugsa um að skella mér með þeim, það eru pælingar um að fara til Krítar í ca. viku eftir að við erum búnar að kynna og áður en við útskrifumst.

en eins og ég sagði áðan endilega skrifið eitthvað í gestabókina mína hún er annsi sorgleg svona

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 10:02:57 / Helga

hello

íbúðin er komin á sölu ef einhver vill sjá
http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=290007

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 22:09:32 / Helga

Klöppum fyrir fólkinu sem kommentaði á bloggið mitt

Ég vil þakka Krullu og Gunnsu fyrir að kommenta á bloggið eins og ég bað um

ekki oft sem fólk gerir það

þannig að

klapp klapp fyrir þeim

8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 08:44:49 / Helga

hæhæ

sælt veri fólkið

aðeins að láta heyra í mér á þessum 21. degi nýs árs. frá mér er allt gott að frétta og heilmikið að gera.

ég er byrjuð i verknáminu og gengur það vel, alltaf að verða betri og betri í þessu:)

það er voða gott að vera heima hjá mömmu og pabba en ég held að þau séu fegnari ef eitthvað er þar sem við Bjarki erum svo dugleg við að elda. Ég sakna þess alveg að vera ekki heima hjá mér á Akureyri í kringum dótið mitt líka, viðurkenni það fúslega.

Ég og Bjarki erum byrjuð á dansnámskeiði hérna fyrri sunnan, fórum í fyrsta tímann í síðastu viku. Okkur lýst mjög vel á þetta. Að vísu þá var ég að snúa öklan á mér í gær þannig að það var ekki gott, sem betur fer var það ekki mjög slæmt.

 Síðan er árshátíð í nýju vinnunni hans Bjarka um næstu helgi og ég búin að fá kjól fyrir 1000 kall fyrir það

ó já ég fór á útsölurnar :D

og þið öll sem eruð að skoða bloggið mitt hvernig væri nú að setja smá komment ég vil vita hverjir þetta eru sem eru alltaf að skoða hérna inni

þannig please setja smá komment


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  17  Alls: 53378
�?�?�?�??�?�?��?¡tskrift
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1335 dögum
Þessir gætu hjálpað þér